Sniglarnir fordæma háskaakstur

Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, fagna því að fleiri mótorhjólasamtök og klúbbar hafi blandað sér opinberlega í umræður undanfarinna daga varðandi hraðakstur sbr. yfirlýsingu sem birtist á www.mbl.is  14. júní sl.

Þetta málefni er ekki einkamál Snigla heldur hefur það áhrif á alla bifhjólamenn og það góða starf sem unnið er innan annarra bifhjólaklúbba landsins, að því er segir í tilkynningu frá Sniglunum.

Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar taka eindregið undir þessa yfirlýsingu Postula og Arna og fordæma allan háskaakstur sem og önnur brot á umferðalögum almennt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert