Hvalveiðar hafa minni áhrif á ferðamannaiðnaðinn en talið var

Ný könnun leiðir í ljós að hvalveiðar fæla ferðamenn ekki …
Ný könnun leiðir í ljós að hvalveiðar fæla ferðamenn ekki frá landinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þriðjungur þeirra sem telja líklegt að þeir muni ferðast til Íslands næstu fimm árin segir að hvalveiðar muni minnka líkurnar á að þeir heimsæki landið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Ferðamálastofa lét gera fyrir samgönguráðuneytið. Tæp 10% segja hins vegar að veiðar myndu auka líkur á Íslandsferð.

Markmið könnunarinnar var að rannsaka hvaða áhrif hvalveiða í atvinnuskyni hafa á ímynd Íslands og íslenska ferðaþjónustu. Könnunin fór fram í Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum og er byggð á rúmlega fimm þúsund svörum frá þessum löndum.

Samhliða þessu voru könnuð viðhorf söluaðila íslenskrar ferðaþjónustu á erlendum mörkuðum og telja um 60% þeirra að hvalveiðar Íslendinga minnki líkur á því að viðskiptavinir þeirra heimsæki Ísland.

Á vefsíðu samgönguráðuneytisins kemur fram a meðal annarra niðurstaðna könnunarinnar er að hvalveiðar í atvinnuskyni hafi á heildina litið einhver neikvæð áhrif á viðhorf almennings til Íslands.

Einnig minnki þær líkurnar á því að sá hluti svarenda sem telur mjög líklegt eða frekar líklegt að hann ferðist til Íslands á næstu fimm árum láti verða af því.

Í könnuninni mælist almenn ímynd Íslands jákvæð og þegar spurt er hvað komi helst upp í hugann þegar Ísland er nefnt nefna flestir hveri, hesta, Reykjavík og Björk.

Samgönguráðuneytið segir að draga megi þá ályktun af könnuninni að hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni séu ólíklegar til að hafa mikil áhrif á íslenska ferðaþjónustu í bráð. Byggist hún meðal annars á því að markhópurinn er ekki vel upplýstur um þá staðreynd að Íslendingar stunda hvalveiðar í atvinnuskyni og hins vegar því að þótt viðhorf til hvalveiða séu almennt neikvæð virðast þau hafa lítil tengsl við ímynd Íslands sem áfangastaðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert