Grunaður um ölvunarakstur með barn í bílnum

Ökumaður sem grunaður er um ölvun við akstur var stöðvaður síðdegis á föstudag á Ísafirði. Samkvæmt dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum var ökumaðurinn að koma frá því að sækja barn sitt á leikskólann.

Tíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í síðustu viku. Sá sem hraðast ók var stöðvaður í Staðardal af lögreglumönnum frá Hólmavík. Sá var mældur á 168 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Með breyttri reglugerð um sektir og önnur viðurlög sem tók gildi um síðastliðin mánaðarmót er sekt vegna þessa 150 þúsund krónur og 3 mánaða svipting ökuréttar.

Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp í liðinni viku. Annað var árekstur innanbæjar á Ísafirði en í hinu tilvikinu valt bifreið út af veginum til Bíldudals. Kona og tvö börn voru þar innanborðs og voru þau flutt til læknisskoðunar en í ljós kom að þau höfðu sloppu án teljandi meiðsla. Bifreiðin var flutt með kranabíl af vettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert