Vextir íbúðalánasjóðs hækka enn

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins hækki um 0,1 prósentu, úr 4,7% í 4,8% á lán með uppgreiðsluálagi, en úr 4,95% í 5,05% á lán án uppgreiðsluálags. Vextir sjóðsins hækkuðu síðast 6. júní, þá um 0,05 prósentur.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 25. júní, ásamt vegnum fjármagnskostnaði. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru 4,37%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert