Mikil umferð frá höfuðborginni, en gengur vel

mbl.is/Guðmundur Karl

Talsverð umferð hefur verið út úr höfuðborginni síðdegis og í kvöld þótt nokkuð hafi dregið úr henni að sögn lögreglu. Engin stórvægileg óhöpp hafa verið tilkynnt og lítið hefur verið um hraðakstur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi hefur verið mikil umferð í norðurátt og er enn, en umferð um Suðurland er sögð minni en um síðustu helgi.

Árekstur varð við Hafnarskóg í kvöld þar sem bifreið var ekið aftan á aðra, önnur bifreiðin var óökufær á eftir, en ekki urðu teljandi meiðsl á fólki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert