Ákvörðun um kvóta ekki tekin strax

Fréttaljósmyndarar bíða utan við Stjórnarráðið eftir að ríkisstjórnarfundi ljúki.
Fréttaljósmyndarar bíða utan við Stjórnarráðið eftir að ríkisstjórnarfundi ljúki.

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í dag, að hann ætlaði að gefa sér tíma þar til um miðjan mánuðinn, eins og áður hefði verið boðað, áður en hann ákveður aflamark helstu nytjastofna, þar á meðal þorsks. Sagðist Einar ætla að nota tímann til að ræða ýtarlega við hagsmunaðila í sjávarútvegi.

Einar vildi lítið tjá sig um málið eftir ríkisstjórnarfundinn en sagði þó ljóst, að verulegur niðurskurður yrði á aflaheimildum. Hann sagði aðspurður, að ekki væri óeining innan ríkisstjórnarinnar um tillgögur Hafrannsóknastofnunar.

Gert er ráð fyrir því, að mótvægisaðgerðir vegna kvótaskerðingar verði kynntar á sama tíma og ákvörðunin um aflakvótann.

Ríkisstjórnarfundurinn hófst um hálfri stundu síðar en áformað var vegna þess að þingflokkur Samfylkingarinnar sat á fundi í morgun um kvótamálið og hugsanlegar mótvægisaðgerðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert