Forsetaembættið fær umhverfisvænan bíl

Ólafur Ragnar Grímsson við nýja bílinn á Bessastöðum.
Ólafur Ragnar Grímsson við nýja bílinn á Bessastöðum. mbl.is/ÞÖK

Tadashi Arashima, forstjóri Toyota í Evrópu, afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, nýjan bíl af gerðinni Lexus LS600h, sem er búinn svonefndu hybrid-kerfi, þ.e. bæði rafmótor og bensínvél. Bíllinn er þannig gerður, að unnt er að aka honum á rafmótor einum allt að 60-70 km hraða á klst. Þá er bíllinn hljóðlaus og laus við útblástur og mengar þar af leiðandi ekki umhverfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert