HB Grandi að flytja fiskvinnslu frá Reykjavík til Akraness

Úr fiskvinnslu HB Granda á Norðurgarði í Reykjavík.
Úr fiskvinnslu HB Granda á Norðurgarði í Reykjavík. mbl.is/Þorkell

Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi stefnir að því að reisa á nýtt fiskiðjuver á Akranesi, sem verði tilbúið síðla árs 2009. Segir félagið á heimasíðu sinni, að þegar starfsemi í nýju húsi á Akranesi hefjist verði fiskvinnsla félagsins í Reykjavík lögð af.

Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Segir þar að stjórn HB Granda hafi ákveðið að gera breytingar á rekstri félagsins í kjölfar þess niðurskurðar á aflamarki, sem sjávarútvegsráðherra ákvað í sumar.

Fram kemur að aflamark félagsins í þorski dragist svo mjög saman á næsta fiskveiðiári að bein sókn í þorsk verður ómöguleg. Þorskur verði því eingöngu veiddur sem meðafli annarra tegunda, s.s. ýsu, ufsa, karfa og grálúðu. Eina skip félagsins, sem til þessa hafi sótt beint í þorsk, sé ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson. Því verði útgerð Sturlaugs breytt á þann veg að hann mun veiða ufsa og karfa, á sambærilegan hátt og hinir tveir ísfisktogarar félagsins, þeir Ásbjörn og Ottó N. Þorláksson.

Afleiðing af þessu verði að þorskvinnsla í landi skreppi verulega saman, en Sturlaugur hefur til þessa lagt henni til hráefni. Landvinnsla botnfisks verði því fyrst og fremst á karfa og ufsa. Til þess að haga henni á sem hagkvæmastan hátt verði hún öll sameinuð í einu nýju fiskiðjuveri, sem áformað sé að reisa á Akranesi.

Stjórn HB Granda hefur sent stjórn Faxaflóahafna ósk um samstarf í þessu skyni, m.a. í því fólgið að Faxaflóahafnir flýti gerð nýrrar landfyllingar og hafnargarðs á Akranesi. HB Grandi stefnir að því að reisa nýtt fiskiðjuver á þeirri uppfyllingu.

Þangað til starfsemi hefst í nýju húsi mun núverandi fiskiðjuver á Akranesi vinna hluta þess ufsa og allan þann þorsk, sem ísfisktogarar félagsins veiða. Hinn hluti ufsans, sem og allur karfi, verður áfram unninn í Reykjavík.

HB Grandi segir, að ekki komi til fjöldauppsagna vegna þessara aðgerða. Einhver fækkun verði þó með því að ekki verði ráðið í öll störf sem losna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert