Vegfarendur um Vesturlandsveg sýni aðgát

Verið er að vinna við hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. Umferð um Vesturlandsveg við vegamót Þingvallavegar hefur verið hliðrað til vesturs og er nú ekið um vestari hluta hringtorgsins, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Jafnframt hafa vegamót við Þingvallaveg verið færð um 100 m til suðurs. Af þessum sökum þarf að aka í sveigum um svæðið og eru vegfarendur beðnir að sýna fyllstu aðgát og huga vel að merkingum. Þetta fyrirkomulag mun vara fram í miðjan ágúst.

Þá er Hólsfjallavegur, vegur 864, sem liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum, frá Dettifossi að austanverðu að Grímsstöðum á Fjöllum mjög grófur og seinfarinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert