Úttekt á lögum um viðskipti neytenda og banka

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp sem hafi það verkefni að gera úttekt á lagaumhverfi að því er varðar viðskipti neytenda og banka í ljósi nútímaviðskiptahátta, einkum með tilliti til gjaldtöku fjármálafyrirtækja fyrir þjónustu í starfsemi sinni og rafrænna greiðslukerfa, s. s. vegna debet- og kreditkortafærslna.

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir, að starfshópurinn eigi að fara yfir lög og reglur, sem lúta að heimildum fjármálafyrirtækja til gjaldtöku. Sérstaklega eigi starfshópurinn að huga að ýmsum gjöldum sem fjármálafyrirtæki krefjast fyrir þjónustu sína og forsendur þeirra, s. s. greiðslum ef neytendur fara yfir á reikningum sínum (fit-kostnaði), seðilgjöldum, innheimtukostnaði og kostnaði við greiðslukort. Hlutverk starfshópsins verður jafnframt að meta hvort ástæða sé til að lögfesta frekari reglur um notkun rafrænna greiðslukerfa.

Starfshópnum er ætlað að skila viðskiptaráðherra skýrslu, og eftir atvikum drögum að lagafrumvarpi, fyrir 1. janúar 2008.

Í nefndinni munu eiga sæti: Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur, formaður, Axel Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Þá verður óskað eftir tilnefninum frá Neytendastofu, Samtökum fjármálafyrirtækja og Fjármálaeftirlitinu í starfshópinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert