Yfirdráttarlán í sögulegu hámarki og gengisbundin lán heimila vaxa

Yfirdráttarlán aldrei mælst hærri hér á landi en nú, að því er kemur fram í ½5 fréttum Kaupþings. Í lok júlí námu yfirdráttarlán heimila 75,6 milljörðum króna, sem er aukning um 11 milljarða milli mánaða. Yfirdráttarlán heimila hafa vaxið jafnt og þétt síðustu árin en hlutdeild þeirra í heildarskuldum heimila er í dag í kringum 10%.

Þá námu gengisbundin lán heimila 94 milljörðum króna í lok júlí og hafa þau nálægt tvöfaldast á einu ári, miðað við fast gengi. Heildarskuldir heimila til bankakerfisins námu 778,6 milljörðum í lok júlí samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands, en skuldir heimila hafa vaxið um 18% frá sama tíma í fyrra.

Kaupþing segir, að gengisbundin lán heimila vegi nú um 12% af heildarskuldum heimila til bankakerfisins en hlutdeild þess hafi vaxið hratt á síðustu misserum. Hátt vaxtastig á síðustu misserum og sterk staða krónunnar hafi þannig beint nýjum húsnæðis- og bifreiðakaupendum til erlendrar lántöku.

Greiðslubyrði heimila af slíkum lánum hefur aukist á síðustu dögum í takt við gengislækkun krónunnar. Kaupþing segir, að hins vegar gæti ásókn heimila í erlend lán tekið kipp á ný nú þegar gengi krónunnar hafi gefið eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert