Fjórir sóttu um Grindavíkurprestakall

Fjórir umsækjendur eru um Grindavíkurprestakall sem auglýst var laust til umsóknar í júlí. Kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Í valnefnd sitja níu fulltrúar prestakallsins auk prófasts Kjalarnessprófastsdæmis og vígslubiskupsins í Skálholti.

Umsækjendur eru sr. Arnaldur Bárðarson, sr. Elínborg Gísladóttir, sr. Hans Markús Hafsteinsson og Þórður Guðmundsson guðfræðingur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert