Ölvaður maður ók á rútu á bílastæði á Þingvöllum

Lögreglan á Selfossi handtók mann, grunaðan um ölvunarakstur, í þjóðgarðinum á Þingvöllum á laugardag. Segir lögreglan, að maðurinn hafi ekki haft meiri stjórn á bíl sínum en svo, að hann ók á rútu sem var kyrrstæð á bílastæði við Flosagjá.

Maðurinn ók á brott án þess að setja sig í samband við rútubílstjórann Ekki komst maðurinn langt því hann ók útaf veginum skammt frá. Þar var hann handtekinn og færður í lögreglustöð þar sem tekið var úr honum blóð- og þvagsýni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert