Atlantsolía hækkar einnig eldsneyti

Atlantsolía hefur hækkað verð á bensíni og dísilolíu um 1,5 krónur lítrann. Stóru olíufélögin hækkuðu eldsneytisverð um 2 krónur lítrann fyrir helgi. Atlantsolía segir, að hækkandi innkaupsverð geri þessa verðbreytingu nauðsynlega.

Eftir hækkun kostar lítri af bensíni 125,90 krónur hjá Atlantsolíu og dísilolíulítri 124,90 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert