Klauf nef árásarmanns með saxi

Betur fór en á horfðist á föstudagskvöld þegar húsráðandi nokkur í Reykjavík brást við innbroti á heimili sitt með stóru kjötsaxi. Hjó hann saxinu í andlit þess sem braut upp hurðina að heimili hans þannig að skarst inn að beini frá enni niður undir vör. Klofnaði nef þess sem braust inn þegar saxið fór í gegnum það.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu ætluðu tveir karlmenn um tvítugt að ráðast á húsráðanda en annar þeirra skuldaði honum fé. Mun hann hafa orðið árásarmannanna var og gripið í kjötsax. Var unnusta hans á heimilinu þegar atvikið átti sér stað og eru þau einnig um tvítug.

Hjó húsráðandi með saxinu um leið og annar mannanna braust inn í húsið með fyrrgreindum afleiðingum. Urðu ekki frekari átök á milli þeirra og hringdi húsráðandi á lögreglu. Handtók hún alla viðstadda og tók til yfirheyrslu og telst málið að fullu upplýst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert