Olíufélögin lækka eldsneytisverð á ný

Olíufélögin hafa lækkað eldsneytisverð að nýju.
Olíufélögin hafa lækkað eldsneytisverð að nýju.

Stóru olíufélögin þrjú hafa lækkað eldsneytisverð á ný um 2 krónur lítrann en verðið hækkaði hjá félögunum fyrir helgina og um helgina og í dag á öðrum bensínstöðvum. Algengt verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu hjá Skeljungi, Olís og N1 er nú 126 krónur lítrinn af bensíni og 125 krónur lítrinn af dísilolíu.

Atlantsolía hækkaði eldsneytisverðið í dag um 1,50 krónur lítrann og hefur ekki lækkað aftur ef marka má heimasíðu félagsins. Ódýrasta listaverðið er hjá Orkunni, 124,30 krónur bensínlítrinn og 123,30 krónur dísilolíulítrinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert