184 brutu umferðarlög á Digranesvegi í gær

Brot 184 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópavogi en þar er 30 km hámarkshraði.

Á tveimur klukkustundum, síðdegis, fóru 288 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en sá sem hraðast ók var mældur á 60.

Eftirlit lögreglu kom í kjölfar ábendinga frá íbúum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert