Húsleit í Reykjavík vegna gruns um fíkniefnainnflutning

mbl.is/Júlíus

Fíkniefnadeild lögreglunnar gerði húsleit í húsi í Laugarneshverfi í Reykjavík nú í kvöld og er þrennt í haldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er um að ræða mál er varðar innflutning en tengist ekki fíkniefnamálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði í gær. Lögreglan vill ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert