Bíll valt á Þúsundvatnaleið

Fólksflutningabíll valt á svonefndri Þúsundvatnaleið á Hellisheiði í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Um tíu manns voru í bílnum og sakaði engan. Mun bíllinn hafa verið á hægri ferð er hann lagðist rólega á hliðina. Í bílnum voru ferðamenn, en Þúsundvatnaleið er vinsælt skoðunarsvæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert