Mikill erill hjá lögreglu á Suðurnesjum

Mikill erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt og eru fangageymslur fullar vegna slagsmála og óláta. Þá var einn lögreglumaður sleginn í andlitið og er með talsverða áverka á eftir. Árásarmaðurinn gistir nú í fangageymslu lögreglunar.

Þá varð umferðaróhapp á Hafnargötunni í nótt og reyndist ökumaður mjög ölvaður. Var hann handtekinn og færður á lögreglustöðina þar sem tekið var úr honum blóðsýni. Var hann vistaður í fangageymslu sökum ölvunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert