Vélarvana bátur við Bjarg

Línubátur með tveimur mönnum er vélarvana við Bjarg norður af Snæfellsnesi og fór björgunarbáturinn Björg frá Rifi að sækja bátinn skömmu eftir hádegi. Gott veður er en nokkur þoka, en mennirnir eru ekki taldir í hættu. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarverði við Rifshöfn tekur það líklega um níu tíma að sigla báðar leiðir og má því eiga von á bátunum til hafnar í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert