Átti að vaða yfir okkur
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur mbl.is/Þorkell
Snarpar deilur hafa verið í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins undanfarna daga vegna aðildar Orkuveitu Reykjavíkur að sameiningu Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysir Green Energy, en REI er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og stjórnarmaður í Orkuveitunni var einangraður í afstöðu sinni innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins en hann hefur verið fylgjandi sameiningu. Vilhjálmur hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að keyra sameininguna í gegn og virða algjörlega að vettugi vilja meirihlutans í borgarstjórnarflokknum.
Mikill skjálfti hefur verið í borgarstjórnarflokknum af þessum sökum og hefur hann hist reglulega á fundum án Vilhjálms. Samkvæmt öðrum heimildum Morgunblaðsins komu hjá einhverjum upp hugmyndir um að slíta samstarfinu við Framsóknarflokkinn og mynda nýjan meirihluta með Vinstri grænum. „Það átti að vaða yfir okkur."
Nú er hins vegar stefnt að því að ná samkomulagi á fundi borgarstjórnarflokksins, sem haldinn verður kl. 12 í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur, og verður blaðamannafundur í kjölfarið.
Líkleg niðurstaða fundar borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna í dag er sú að Orkuveita Reykjavíkur eigi að draga sig út úr rekstri REI með því að selja sinn hlut. Nefnt hefur verið fjölbreytt eignarhald. Ekki er þó hægt að bjóða almenningi að kaupa hlut í félaginu fyrr en það er komið á markað, en í því sambandi hefur verið horft til þriggja ára.
„Þess verður freistað að ljúka málinu á þann hátt að Orkuveitan selji sig út úr þessu og láta eins og þetta hafi aldrei gerst."
Upphaf deilnanna má rekja til þess að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru boðaðir til „skyndifundar" um málefni Orkuveitunnar í stöðvarstjórahúsinu í Elliðaárdalnum á þriðjudagskvöld og vissu aðeins Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson fundarefnið. Þar voru fulltrúar annarra sveitarfélaga sem sæti eiga í stjórn Orkuveitunnar, Borgarbyggðar og Akraness. Þá var þar Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitunnar og stjórnarmaður í REI, og Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI.
Eins og fundinum er lýst fyrir blaðamanni var fólk boðið velkomið og síðan brugðið upp glæru þar sem stóð: „Samruni REI við Geysi Green Energy." Einn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins kemst svo að orði: „Þetta var það fyrsta sem við sáum um málið. Við höfðum ekki haft af því minnsta veður."
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að eyðileggja útrás jarðhitans? -
Stefán Friðrik Stefánsson Vilhjálmur Þ. bregst trausti samherja sinna -
Jón Ingi Cæsarsson Er þeim sætt ? -
Björk Vilhelmsdóttir Það var vaðið á drullugum skónum -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Hvernig er verðmæti REI fengið út? -
Bjarni Kjartansson Kattarþvottur enn sem komið er. Meira þarf til að traust ... -
Jenný Anna Baldursdóttir Kæri Vilhjálmur -
Páll Helgi Hannesson Vaða Sjálfstæðimenn úr öskunni í eldinn? -
Þorkell Heiðarsson Kaupréttur okkar! -
-
Þorsteinn Siglaugsson Nokkrar spurningar -
Sigurður Viktor Úlfarsson Dýrasta fýlukast Íslandssögunnar
Innlent »
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. október 2007, Innlent Stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI
- Þriðjudagur, 9. október 2007, Innlent Eiga forkaupsrétt á hlut Orkuveitunnar
- Laugardagur, 13. október 2007, Innlent Víðtækar skyldur Orkuveitunnar við REI í 20 ár
- Miðvikudagur, 16. apríl 2008, Innlent Skoða aðkomu fjárfesta og halda áfram verkefnum REI
- Mánudagur, 8. október 2007, Innlent Fundur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hefjast
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































