Flutt til Selfoss og leidd fyrir dómara

Slökkvilið utan við hús við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum þar sem …
Slökkvilið utan við hús við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum þar sem eldur kviknaði í gær. mynd/Suðurland.is

Kona, sem handtekin var í Vestmannaeyjum í gær vegna gruns um að hún hafi kveikt í íbúð sinni, er í haldi lögreglunnar á Selfossi. Krafa um gæsluvarðhald yfir konunni var gerð fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en dómari tók sér frest til að taka afstöðu til kröfunnar.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að flytja konuna til lands svo unnt væri að leiða hana fyrir dómara innan tilskilins frests þar sem ófært var fyrir annað flug til Eyja vegna skyggnis.

Lögreglan á Selfossi segir, að rannsókn málsins miði vel áfram en rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi ásamt lögreglunni í Vestmanneyjum og tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins vinnur að henni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert