Össur átti fund með forseta Filippseyja

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ásamt Gloriu Arayo í forsetahöllinni í Manilla …
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ásamt Gloriu Arayo í forsetahöllinni í Manilla í dag.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, átti í dag fund með Gloriu Arrayo í Malcanang forsetahöllinni í Manilla, ásamt Angelo T. Reyes orkumálaráðherra Filippseyja og yfirmönnum filippeyska ríkisorkufyrirtækisins.

Fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu, að filippeysk stjórnvöld hafi ákveðið að markaðsvæða ríkisorkufyrirtæki landsins, þar á meðal jarðgufuvirkjanir. Hafi bæði forseti orkumálaráðherra Filippseyja hvatt Íslendinga til að taka þátt í því ferli.

Arrayo lýsti jafnframt mikilli ánægju með Jarðhitaskóla Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi og mikilvægi hans fyrir menntun margra filippseyskra jarðhitavísindamanna. Hún og iðnaðarráðherra ræddu meðal annars möguleika á því að efla skólann, og veita ungum og efnilegum jarðvísindamönnum frá Filippseyjum, færi á lengra námi við skólann, sem leiddi til meistaragráðu eða doktorsgráðu við íslenska háskóla.

Össura kynnti forsetanum meðal annars hugmyndir um að halda á næstu árum sérstök sumarnámskeið á vegum Jarðhitaskólans í Suðaustur-Asíu sem yrðu opin efnilegum asískum vísindamönnum á sviði jarðhita.

Fyrir fundinn með forseta Filippseyja átti Össur Skarphéðinsson sérstakan fund með Angelo T. Reyes, orkumálaráðherra, þar sem rætt var um frekara samstarf milli þjóðanna á sviði jarðhitavinnslu, og ræddi Reyes ráðherra meðal annars möguleika á aðstoð Íslendinga við að byggja upp háskólanám í jarðhitafræðum á Filippseyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert