Starfsgreinasambandið kynnti SA áherslur í komandi kjaraviðræðum

Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins
Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins

Kaupmáttaraukning og efnahagslegur stöðugleiki, - hækkun lægstu launa og launaþróunartrygging ber hæst í markmiðum Starfgreinasambandsins í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins, en markmiðin voru kynnt SA í dag.

„Stórbæta verður kjör þeirra sem lægst hafa launin og að kaupmáttur þeirra, sem setið hafa eftir í launaþróuninni, hækki umtalsvert meira en annarra. Samið verði um að taxtar verði færðir nær greiddu kaupi og öryggisnetið þar með gert tryggara. Starfsgreinasambandið vill að samið verði til tveggja ára um almennar launahækkanir sem tryggi verkafólki kaupmáttaraukningu á samningstímabilinu.

Bæta þarf veikinda-, slysa- og örorkuréttindi. Vísað er til ályktunar þings Starfsgreinasambandsinsí því sambandi, sem fagnaði hugmyndum um ,,nýtt kerfi veikinda-, slysa- og örorkuréttinda á almennum markaði” sem jákvæðu og mikilvægu framlagi til jöfnunar á veikindarétti félagsmanna aðildarfélaga sambandsins og einu mikilvægasta framfaraspori í þessum efnum um langt skeið. Jöfnun lífeyrisréttinda og aukin tryggingavernd hafa um árabil verið og eru enn markmið á vettvangi kjaramála sambandsins.

Önnur markið Starfsgreinasambandsinseru aukin framlög atvinnurekenda í fræðslusjóði. Aukin vernd launafólks við uppsagnir og að kynbundnum launamun verði eytt," samkvæmt vef Starfsgreinasambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert