Samkeppniseftirlitið hvetur fólk til að senda ábendingar

Samkeppniseftirlitið hvetur þá sem telja sig hafa upplýsingar um brot á samkeppnislögum til þess að koma þeim upplýsingum á framfæri við eftirlitið. Vísar stofnunin í umfjöllun fjölmiðla í gær og í dag þar sem því hefur verið haldið fram að matvöruverslanir hefðu með sér ólögmætt samráð.

Upplýsingunum er hægt að koma á framfæri í síma eða á skrifstofu eftirlitsins og eru starfsmenn Samkeppniseftirlitsins reiðubúnir að eiga fundi með viðkomandi. Jafnframt er hægt að koma upplýsingum á framfæri í gegnum heimasíðu Samkeppniseftirlitsins, www.samkeppni.is, nafnlaust eða undir nafni. Gætt er trúnaðar í öllum samskiptum, sé þess óskað.

Samkeppniseftirlitið segir æskilegt, að ábendingar um hugsanleg samkeppnislagabrot séu eins ítarlegar og hægt sé, s.s. um það hvaða fyrirtæki sé að ræða, hvenær brotin hafi átt sér stað, hvernig staðið hafi verið að samráði og hversu umfangsmikið það hafi verið. Af eðli máls leiði, að ábendingar sem séu ítarlegar um staðreyndir máls séu haldbetri en órökstuddar fullyrðingar.

Frekari upplýsingar um meint samkeppnislagabrot eru forsenda þess að Samkeppniseftirlitið geti metið hvort ástæða sé til að hefja rannsókn. Eru þeir sem telja sig hafa slíkar upplýsingar því hvattir til að koma þeim á framfæri.

Þá segir Samkeppniseftirlitið, að í umfjöllun fjölmiðla hafi einnig komið fram upplýsingar um verðbreytingar í tengslum við verðkannanir. Aðilar geti komið ábendingum um það á framfæri við eftirlitið, samhliða ábendingum um samkeppnislagabrot. Muni Samkeppniseftirlitið fara yfir þær og beina þeim í réttan farveg, s.s. til Neytendastofu. Neytendastofa fer með eftirlit með lagaákvæðum um óréttmæta viðskiptahætti og verðmerkingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert