Tugir þúsunda klámmynda fundust í tölvum tveggja Íslendinga

Yfir þúsund mynddiskar og geisladiskar með barnaklámi voru gerðir upptækir
Yfir þúsund mynddiskar og geisladiskar með barnaklámi voru gerðir upptækir Reuters

Tveir karlmenn, báðir búsettir á höfuðborgarsvæðinu, annar á fertugsaldri en hinn á þrítugsaldri, voru handteknir í mars á þessu ári vegna gruns um að þeir væru viðskiptavinir vefsíðu sem innihélt barnaklám. Í tölvum annars mannsins fundust tæplega 1000 ljósmyndir sem, að mati lögreglu, innihéldu efni sem sýndi kynferðislega misnotkun á börnum. Um var að ræða myndir sem hann hafði sótt víðsvegar á netinu. Í fórum hins sakborningsins fann lögreglan rúmlega 24 þúsund ljósmyndir og um 800 hreyfimyndir sem, að mati lögreglu, sýndu kynferðislega misnotkun á börnum.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að alþjóðleg lögreglurannsókn vegna dreifingar og sölu á netinu á efni sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum hófst árið 2006 þegar myndbönd, sem innihéldu slíkt efni, fundust í Ástralíu.

Rannsóknin, sem gefið var nafnið Operation Koala, leiddi í ljós að efnið var upprunnið frá Úkraínu, Belgíu og Hollandi. Í kjölfarið var 42 ára ítalskur karlmaður handtekinn vegna framleiðslu á slíku efni og sölu á því í gegnum heimasíðu sína á netinu.

Viðskiptavinir hins handtekna reyndust vera um 2.500 talsins og teygði rannsóknin sig til 30 landa.

Í fréttatilkynningu á vef Europol kemur fram að Ítalinn rak eigið upptökuver í Úkraínu auk þess sem hann framleiddi einnig klámefni í Belgíu og Hollandi. Greiddi hann börnum smápeninga fyrir að fá að taka myndir af þeim í kynferðislegum stellingum. Meðal myndbanda sem maðurinn seldi var myndband sem sýndi karlmann misnota tvær dætur sínar 9 og 11 ára kynferðislega. Jafnframt bauð hann viðskiptavinum upp á að koma með óskir um hvað þeir vildu fá að sjá.

Samkvæmt upplýsingum frá Europol hefur fjöldi manna verið handteknir í tengslum við málið og mikið magn barnakláms hefur fundist í fórum þeirra. Einhverjir hinna handteknu störfuðu með börnum, svo sem grunnskólakennarar og sundkennarar.

Alls hafa verið borin kennsl á 23 börn á aldrinum 9-16 á myndum sem Ítalinn dreifði.

Haft er eftir forstjóra Europol, Max-Peter Ratzel, að rannsóknin hafi verið gríðarlega umfangsmikil og tímafrek en það að barnaníðingar eiga nú yfir höfði sér dóma geri hverja mínútu sem rannsóknin tók þess virði.

Í byrjun mars 2007 barst tilkynning frá Europol til íslenskra lögregluyfirvalda um að tveir af hinum 2500 viðskiptavinum ofangreindrar heimasíðu væru íslenskir. Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hóf þegar rannsókn málsins.

Tveir karlmenn, báðir búsettir á höfuðborgarsvæðinu, annar á fertugsaldri en hinn á þrítugsaldri, voru handteknir. Lögreglan gerði húsleit hjá þeim báðum og lagði hald á tölvur og ýmis gögn.

Annar sakborninganna viðurkenndi við yfirheyrslur að hafa skoðað umrædda heimasíðu en reyndist ekki hafa keypt neitt efni þaðan. Í tölvum hans fundust hins vegar tæplega 1000 ljósmyndir sem, að mati lögreglu, innihéldu efni sem sýndi kynferðislega misnotkun á börnum. Um var að ræða myndir sem hann hafði sótt víðsvegar á netinu. Í fórum hins sakborningsins fann lögreglan rúmlega 24 þúsund ljósmyndir og um 800 hreyfimyndir sem, að mati lögreglu, sýndu kynferðislega misnotkun á börnum. Heildarsýningartími hreyfimyndanna var um 46 klukkustundir og þar á meðal var efni af umræddri heimasíðu.

Báðir sakborningarnir eru sakaðir um brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga en þar segir m.a.: „Hver sem flytur inn, aflar sér eða öðrum, eða hefur í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum ef brot er stórfellt.“ Rannsókn beggja þessara mála er lokið. Málin hafa verið send embætti ríkissaksóknara til meðferðar en það embætti fer með saksókn í málum af þessum toga.

14 önnur barnaklámsmál í rannsókn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í ár

Fjórtán önnur mál vegna barnakláms hafa verið til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er þessu ári. Lögreglan hvetur fólk til að tilkynna ef það verður vart við efni á netinu sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum. Bæði er hægt að tilkynna beint til lögreglunnar eða í gegnum heimasíðu Barnaheilla Þar, sem og á vef lögreglunnar er að finna leiðbeiningar varðandi aðgerðir gegn barnaklámi.

Í undirbúningi hjá lögreglu er samstarf við hérlend netfyrirtæki til að hindra dreifingu og útbreiðslu á myndefni sem inniheldur kynferðislega misnotkun á börnum. Til eru sérstök forrit sem notuð eru í þessu skyni sem finna slíkar heimasíður, auðkenna þær og hindra aðgang að þeim. Slík forrit eru þegar í notkun í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

Vefur Barnaheilla

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert