Unnið faglega á Keflavíkurflugvelli eftir settum reglum

Frá fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Frá fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eyþór

Forsætisráðuneytið segir í yfirlýsingu, að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. hafi unnið faglega eftir settum lögum og þjónustusamningi við fjármálaráðuneytið. Eigi forsætisráðuneytið ekki von á öðru en að þetta verði staðfest af hálfu Ríkisendurskoðunar við reglubundna yfirferð yfir reikninga félagsins.

Segir ráðuneytið, að vonir standi til þess, að félagið fái starfsfrið til að sinna áfram því mikla uppbyggingarstarfi sem hafið sé á fyrrverandi varnarsvæði í nánu samstarfi við heimamenn.

Yfirlýsing forsætisráðuneytisins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert