Bíða veðurs í Borgarnesi

mbl.is

Tíu flutningabílar á leið til Reykjavíkur bíða nú í Borgarnesi eftir því að veður lægi undir Hafnarfjalli, en þar fer vindur yfir 50 metra á sekúndu í hviðum, að sögn lögreglunnar.

Flutningabíll fauk út af veginum undir Hafnafjalli í nótt, sagði lögreglan í Borgarnesi, en ekki urðu slys á mönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert