Rafmagnslaust í Snæfellsbæ

Rafmagn fór af Snæfellsbæ og nærsveitum klukkan 9 í morgun. Viðgerðarflokkur frá Ólafsvík er á leið til viðgerðar samkvæmt upplýsingum frá RARIK, en veður er frekar slæmt.

Rafmagn kom aftur á í Árneshreppi laust fyrir klukkan 9 en rafmagnslaust var þar frá því snemma í morgun og truflanir í nótt. Talið er að slegið hafi út vegna ísingar í Steingrímsfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert