Hjartaþræðingar: Sambærilegur árangur og í Svíþjóð

Framkvæmd og árangur hjartaþræðinga og kransæðavíkkana hér á landi er sambærilegur við það sem gerist á sjúkrahúsum í Svíþjóð. Þá er tíðni fylgikvilla svipuð í þessum tveimur löndum. Slíkur samanburður er nú í fyrsta sinn mögulegur því í upphafi árs hófst skráning í sænska gæðaskrá - SCAAR (Swedish Coronary Angiography and Angioplasty Registry) á kransæðaþræðingum og kransæðavíkkunum á Landspítala.

Hjartalæknar á spítalanum geta nú fylgst með meðferð og árangri og borið saman við sjúkrahús í Svíþjóð samdægurs. Gæðaskráin er hluti af rafrænni sjúkraskrá Landspítalans og er með þessu brotið blað í þróun hennar, segir Þórarinn Guðnason, hjartasérfræðingur á Landspítala sem jafnframt er ábyrgðarlæknir SCAAR-gæðaskrárinnar á Íslandi. Í

Nánar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert