Staða Íslands hefur versnað í öllum greinum

Staða Íslands í alþjóðlegum samanburði á menntakerfum, hefur versnað frá árinu 2000.

Staða Íslands í alþjóðlegum samanburði á menntakerfum, hefur versnað frá árinu 2000. mbl.is/ÞÖK

Staða Íslands miðað við aðrar þjóðir hefur versnað í öllum námsgreinum sem svonefnd PISA-könnun nær til, mest í lesskilningi en minnst í stærðfræði. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á fundi í menntamálaráðuneytinu í morgun.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist ekki geta neitað því að niðurstöðurnar valdi vonbrigðum, sérstaklega í ljósi þess mikla uppbyggingar- og  þróunarstarfs sem átt hafi sér stað í skólum landsins á undanförnum áratug og þeirrar staðreyndar að fáar aðrar þjóðir verja jafn miklu fjármagni til grunnskólastigsins.

„Þá er sama hvort horft er á frammistöðu nemenda á prófunum eða stöðu Íslands í samanburði við önnur lönd. Frammistaða nemenda er nú verri í öllum greinunum en hún var árið 2000 og það sama á við ef frammistaðan nú er borin saman við árangur okkar árið 2003. Við þetta má svo bæta að ef við berum okkur saman við önnur lönd þá fjölgar þeim löndum sem ná betri árangri en við. Þótt þessar niðurstöður séu í heild sinni áhyggjuefni þá hef ég sérstakar áhyggjur af lesskilningi nemenda okkar. Þar erum við að dragast mest aftur úr öðrum löndum,“ sagði Þorgerður.

Í fréttatilkynningu ráðuneytisins segir: OECD birtir í dag niðurstöður alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar sem Ísland tók þátt í árið 2006 (PISA). PISA er stærsta samanburðarrannsóknin á frammistöðu menntakerfa í heiminum en í rannsókninni er könnuð kunnátta 15 ára nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði í 57 löndum. Þessi könnun var einnig lögð fyrir fyrir árin 2000 og 2003. Námsmatsstofnun sá um framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi og tóku allir grunnskólar og velflestir nemendur 10. bekkjar þátt í henni. Í könnuninni núna var sérstök áhersla á náttúrufræði þar sem reyndi á þekkingu nemenda á ýmsum sviðum raunvísinda, færni þeirra til að túlka vísindalegar staðreyndir og nota vísindaleg rök.

Í lesskilningi hefur frammistöðu íslenskra nemenda hrakað marktækt frá árinu 2000. Þeim nemendum sem lenda í lægsta hæfnisþrepinu hefur fjölgað og þeim sem lenda í efsta hæfnisþrepinu fækkað, bæði í lesskilningi og náttúrufræði. Þá hefur frammistaða nemenda eftir landshlutum hefur breyst á milli rannsókna. Vestfirðir, Norðurland eystra og vestra sýna bestu frammistöðu landshluta, en Austurland ásamt Reykjavík og nágrenni hrakar mest frá árinu 2000.

Brýnt sé að leitað verði skýringa á þessari útkomu og þurfi skólayfirvöld, sveitarstjórnir, skólastjórnendur og kennarar að fara í saumana á þessum niðurstöðum og draga af þeim lærdóm. Menntamálaráðherra treysti því að frumvörp til laga fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, ásamt frumvarpi um kennaramenntun, sem nýlega voru lögð fram á Alþingi, skapi forsendur fyrir bættum árangri nemenda en þar er m.a. gert ráð fyrir lengingu kennaramenntunar og skilvirkara mati á skólastarfi.

„Árið 2000 náðu átta lönd betri árangri en við á lestrarprófinu en árið 2006 var þessi tala komin upp í 15. Þá eru það einnig vonbrigði að sjá að í náttúrufræði og lestri hefur íslenskum nemendum fjölgað í lægstu getu­hópunum en fækkað í þeim efstu,“ sagði Þorgerður.

„Við skulum þó varast alhæfingar því niðurstöðurnar eru ekki einsleitar. Það er t.d. athyglisvert að sjá að dregið hefur úr þeim mun sem var á frammistöðu drengja og stúlkna en einnig vakti það athygli mína hversu ólík frammistaða nemenda er eftir lands­hlutum þótt áfram sé lítill munur á milli skóla. Þetta, ásamt fjölmörgu öðru sem fram kemur í rannsókninni, hlýtur að vekja upp spurningar sem við öll hljótum að skoða gaum­gæfilega á næstunni. Það má finna gríðarlegan fróðleik í þeim gögnum sem nú liggja fyrir og þau eru öllum aðgengileg. Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja rannsakendur á sviði skólamála, kennara og skólayfirvöld um land allt, að nýta sér þessi gögn til að leita svara við spurningum sem vakna við lestur þessara niðurstaðna.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetning bæði fyrir hestafólk ...
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
 
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...