Alvarlegum slysum fækkar

.

. Morgunblaðið/ Þorkell

Slysum með alvarlegum meiðslum og banaslysum gangandi vegfarenda hefur fækkað verulega í Reykjavík á síðustu áratugum. Þetta er kemur fram í nýrri skýrslu um „slys á gangandi vegfarendum í Reykjavík" sem unnin var af Línuhönnun fyrir Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar.

„Skoðun almennings virðist þó oft vera sú, að ástandið í umferðaröryggismálum hafi aldrei verið verra og slysum fari sífellt fjölgandi. Staðreyndin er hins vegar sú, að með samstilltu átaki margra aðila hefur verulegur árangur náðst við að fækka slysum, þó að auðvitað megi alltaf gera betur" segir meðal annars í inngangi skýrslunnar, að því er segir í tilkynningu.

Stefán A. Finnsson yfirverkfræðingur á Framkvæmdasviði kynnti skýrsluna á fundi framkvæmdaráðs í morgun. Stefán segir niðurstöður skýrslunnar mjög ánægjulegar, sérstaklega í ljósi þess að búast hefði mátt við fjölgun slysa samfara fjölgun íbúa, lengra gatnakerfi og aukinni umferð. „Umferðinni núorðið er betur stýrt en áður var, m.a. með hringtorgum og umferðarljósum. Með gangbrautarljósum, girðingum og miðeyjum eru þverunarstaðir gangandi vegfarenda orðnir öruggari en áður" segir Stefán. „Göngubrýr og undirgöng hafa gert sitt í að bæta öryggi gangandi vegfarenda og stígakerfið hefur lengst verulega og hönnun þess batnað," samkvæmt tilkynningu.

Erfitt er að meta áhrif hverrar aðgerðar, en heildaráhrifin til fækkunar eru greinileg. Áhrif aðgerðanna virðast vera meiri eftir því sem alvarleiki slysa, sem eru til skoðunar, er meiri. Þetta kemur skýrt fram þegar skoðaður er hlutfallslegur alvarleiki fótgangendaslysa í 30 km hverfum, fyrir og eftir framkvæmdir við hverfin. Breytingin sést greinilega: Það dregur úr alvarleika slysa á gangandi vegfarendum. Alvarlegu slysin sem eru að jafnaði 21% fyrir aðgerðir eru 10% eftir innleiðingu 30 km hverfa, að því er segir í fréttatilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fjöldi fólks kom saman á Skólavörðuholti í tilefni af Vetrarhátíð.

Fjöldi fólks sótti Vetrarhátíð

23:08 Fjöldi fólks gerði sér ferð í miðborg Reykjavíkur í kvöld þegar Vetrarhátíðin var sett. Fjöldi viðburða eru um alla borg næstu daga og er markmiðið með þeim að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar. Borgarbúum og gestum gefst tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér að kostnaðarlausu. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir.

Laun forsætisráðherra hækkað um 217 þúsund

22:43 Laun Jóhönnu Sigurðardóttur hafa hækkað um 217 þúsund krónur á kjörtímabilinu og með starfstengdum greiðslum fær hún 235 þúsund krónum meira fyrir störf sín en í upphafi kjörtímabils. Þetta kemur fram í Fréttatímanum, sem kemur út á morgun. Meira »

Artemisia sigraði aftur

Artemisia Bertus sigraði í meistaradeildinni í kvöld, á Korg frá Ingólfshvoli. Hér er hún með ...
22:31 Artemisia Bertus, Hrímni, á stóðhestinum Korg frá Ingólfshvoli sigraði í gæðingafimi á öðru móti meistaradeildar í hestaíþróttum sem fram fór í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í kvöld. Artemisia sigraði einnig á fyrsta móti meistaradeildarinnar, í fjórgangi, þá á Óskari frá Blesastöðum 1a, og er því með örugga forystu í mótaröðinni. Meira »

ESB kallar eftir sameiningu ráðuneyta

Evrópuþingið í Brussel.
21:51 Meðal þess sem kemur fram í tillögu að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins sem rædd var á fundi hennar 6. febrúar síðastliðinn er að nefndin leggi áherslu á það við íslensk stjórnvöld að þau haldi áfram vinnu við að sameina ráðuneyti eins og stefnt hafi verið að. Meira »

Sviðið fauk í hávaðaroki

Sviðið fauk á hliðina í hávaðaroki.
21:28 Vetrarhátíð var sett við Hallgrímskirkju í kvöld en ekki vildi betur til en svo að sviðið fauk á hliðina í rokinu. Flestir áhorfendur voru farnir og enginn var í námunda við sviðið þegar það fauk. Meira »

„Gjörspilltir stjórnmálamenn“ til valda

Björn Valur Gíslason
22:00 Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að gjörspilltir stjórnmálamenn séu komnir aftur til valda í Kópavogi og ekki þurfi að óttast að þeir láti almennar leikreglur stöðva sig. Í pistli á vefsvæði sínu segir hann að ástandið sé því orðið eðlilegt aftur í sveitarfélaginu. Meira »

Skoða lækkun á gjöldum

Kópavogur
21:29 Endurskoða á fasteignagjöld á íbúðir og önnur gjöld með lækkun í huga, samkvæmt málefnasamningi nýs meirihluta í Kópavogi. Þó verði ábyrg fjármálastjórnun viðhöfð og áhersla lögð á niðurgreiðslu skulda. Ennfremur á að leggjast í úttekt á stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélagsins. Meira »

Trúnaður ríkir um mál kennara

Brekkuskóli á Akureyri.
21:09 Formaður skólanefndar Akureyrar segist ekkert geta tjáð sig um málefni grunnskólakennara í Brekkuskóla sem skrifað hefur um samkynhneigð sem synd á vefsvæði sitt. Málið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar fyrr í vikunni. Meira »

Ætlar á sjóinn aftur myndskeið

Eirikur Sjomadur
20:35 Eiríkur Ingi Jóhannsson segist hafa fengið góð viðbrögð við frásögn sinni sem birtist í Kastljósi í síðustu viku. Lítið sé að gera við því þó einhverjir hafi viljað líta neikvætt á það. Eiríkur segist ætla aftur á sjóinn sem hann segist ekki óttast þrátt fyrir slysið hörmulega undan Noregsströnd. Meira »

410 milljón króna lán Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður.
19:52 Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lántöku upp á 410 milljónir króna hjá Lánasjóði sveitarfélaga, vegna endurfjármögnunar afborgana hjá sjóðnum. Meira »

Minningarsjóður Vilhjálms Vilhjálmssonar

Stofnendur minningarsjóðs um Vilhjálm Vilhjálmsson.
20:23 Stofnaður hefur verið minningarsjóður í nafni Vilhjálms Vilhjálmssonar söngvara. Hlutverk hans er að styrkja árlega til náms söngvara sem þykja skara fram úr á sínu sviði. Meira »

Líkir samkynhneigð við bankarán

Snorri Óskarsson grunnskólakennari.
19:49 Snorri Óskarsson, grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri, líkir samkynhneigð við það að ræna banka, að því leyti að hvort tveggja sé synd. Þetta sagði hann í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Meira »

Heilsugæslum verði fækkað

Neskaupstaður.
19:35 Í skýrslu sem gerð var að beiðni HSA vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda er lagt til að miðstöð bráðalækninga á Austurlandi verði á Egilsstöðum og að heilsugæslustöðvum á svæðinu verði fækkað. Skýrslan er aðeins hugmyndaplagg, segir forstjórinn. Meira »

Vill sveigjanlegt eftirlaunakerfi

Jóhanna í hópi níu forsætisráðherra sem funduðu Stokkhólmi í dag.
19:00 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í dag að hún vildi að eftirlaunakerfið væri sveigjanlegt þegar kæmi að starfslokum og upptöku eftirlauna og vísaði til íslenska eftirlaunakerfisins. Meira »

Vill ekki þvinga fólk til að skipta um ferðamáta

Gísli Marteinn Baldursson.
18:37 „Við eigum ekki að reyna að þvinga fólk sem þegar er búið að koma sér fyrir á góðum stað í úthverfi, til að skipta um ferðamáta ef það hefur ekki áhuga á því,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, um nýja ferðavenjukönnun sem kynnt var í dag. Meira »

Átti undir högg að sækja

Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki og Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa á blaðamannafundinum.
19:28 Slit meirihlutasamstarfsins í Kópavogi og upplausnin sem í kjölfarið fylgdi má rekja til þess að traust á bæjarstjóranum, Guðrúnu Pálsdóttur, þvarr. Með nýjum meirihluta hverfur Guðrún aftur til fyrri starfa hjá bænum sem sviðsstjóri. Hún er sögð njóta fyllsta trausts. Meira »

Voru ekki á varðbergi

Auður Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins.
18:49 Forsvarsmenn lífeyrissjóða voru ekki á varðbergi gagnvart gölluðum skilmálum kúlulána og hjarðhegðun einkenndi lífeyrissjóðina þegar kom að fjárfestingum fyrir hrun. Þetta segir Auður Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins, en fundað er nú um lífeyrissjóðaskýrsluna á Nordica. Meira »

Ókyrrð í lofti raskar flugi

Flugfélag Íslands
18:25 Flugfélag Íslands hefur þurft að aflýsa flugi til Nuuk í Grænlandi og frá Ísafirði í kvöld vegna ókyrrðar í lofti. Óvíst er með flug til Akureyrar og Egilsstaða, og eins frá sömu stöðum. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ENN MEIRI AFSLÁTUR - PIPAR OG SALT
ÚTSALA - ÚTSALA - ENN MEIRI AFSLÁTTUR - PIPAR OG SALT, Klapparstíg 44, sími 562 ...
D.A.S. og ARX vörur hjá www.nlh.is
DAS Audio er topp lausn í hljóðkerfum fyrir tonleika, íþróttavelli og "Live" PA....
Gisting Akureyri - gista.is
Notalegar orlofsíbúður miðsvæðis á Akureyri. Uppábúin rúm, handklæði og internet...
Rafmagns Rúm 160x200
Rafmagns pottnar rammi og fjórar dýnur ver 150.þú upp sirra@tt.is sím 80980713...
 
Hjálpræðisherinn kaffi amen
Félagsstarf
Kaffi Amen, föstudagur kl. 21 L...
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í laugarnes- og túnahverfi

Félag sjálfstæðismanna í Laugarnes- ...
Sölumaður óskast
Afgreiðsla/verslun
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...