Grunur vaknaði á dögunum um að kynferðisbrotamaður sem situr inni á Kvíabryggju hefði hringt í fórnarlamb sitt úr fangelsinu og ógnað því. Þolandi gerði lögreglu viðvart og Fangelsismálastofnun rannsakaði málið í kjölfarið. Ekki þótti sannað að símtalið hefði komið úr síma geranda og því var málið látið niður falla.
Föngum á Kvíabryggju er heimilt að hafa farsíma frá kl. 8 til 23, en þeir eru skráðir. Notkun þeirra er þó ekki háð eftirliti en misnotkun þeirra getur varðað brottflutningi yfir í annað fangelsi. Samkvæmt heimildum 24 stunda er afar auðvelt að smygla óskráðum farsímum, sem og öðrum hlutum, inn í fangelsið.
Kvíabryggja er skilgreind sem opið fangelsi. Þar er öryggisgæsla í lágmarki og fangar njóta ákveðins frelsis umfram þá sem vistast í lokuðu fangelsi. „Þeir sem fá að afplána á Kvíabryggju eru þeir sem við teljum best treystandi til að fara eftir þeim reglum sem þar eru í gildi," segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. „Það er til lítils að vista þar menn sem við teljum að muni flýja við fyrsta tækifæri, enda er auðvelt að flýja þaðan."