300 milljarða kostnaður við að leggja raflínur í jörðu
SA telja að það gæti kostað 300 milljónir að leggja allar raflínur í jörðu. mbl.is/Einar Falur
Samtök atvinnulífsins segja, að kostnaður við að leggja núverandi raflínukerfi landsins í jörðu gæti numið yfir 300 milljörðum króna. Verði það almenn stefna að leggja raflínur í jörð muni flutningskostnaður raforku á Íslandi margfaldast og reikningurinn sendur til íslenskra fyrirtækja og heimila.
Þingmenn úr öllum flokkum Alþingis hafa sameinast um að leggja til að ríkisstjórn Íslands skipi nefnd til að móta stefnu um hvernig leggja megi á næstu árum og áratugum raflínur í jörð sem nú eru ofan jarðar. Á heimasíðu SA segir, að koma verði í ljós hvort jólagjöf þingmannanna verði á endanum metin til fjár. Þó er ljóst er að verðmiði hennar, m.v. núverandi aðstæður og fyrirliggjandi tækni, gæti hlaupið á yfir þrjú hundruð milljörðum króna.
Þessi kostnaður muni hindra stofnun nýrra fyrirtækja og draga úr hvata til nýsköpunar auk þess að draga úr lífsgæðum landsmanna. Flutningskostnaður raforku sé nú þegar tvöfalt hærri á Íslandi en á Norðurlöndunum, samkvæmt upplýsingum Landsnets, sem skýrist af miklum fjárfestingum og uppbyggingu á undanförnum árum.
Samtök atvinnulífsins segjast telja rétt að halda áfram lagningu jarðstrengja þar sem það er hagkvæmt og framkvæmanlegt en miðað við núverandi aðstæður og fyrirliggjandi tækni sé mikilvægara að efla svokallaða byggðalínu til að fyrirtæki út um allt land hafi aðgang að raforku til atvinnuuppbyggingar áður en leitað verði leiða til að grafa allar raflínur í jörð með tilheyrandi umhverfisraski og ómældum kostnaði. Benda megi á, að byggðalínan sé þegar fullnýtt og fyrir liggi að styrkja þurfi hana til að unnt sé að halda áfram atvinnuuppbyggingu á ákveðnum svæðum.
Þá segjast SA jafnframt telja það forgangsmál, að fjarskipti fólks og fyrirtækja á landsbyggðinni verði bætt svo atvinnulíf þar geti setið við sama borð og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni þess.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Mörg vandamál -
percy B. Stefánsson Náttúran njóti vafans! -
Rúnar Ingi Guðjónsson Gífurleg sóun á orku -
Berglind Steinsdóttir Voðalegur þvergirðingsháttur er þetta í Samtökum atvinnulífsins
Innlent »
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. desember 2007, Innlent Allar raflínur fari í jörðu
- Þriðjudagur, 8. júlí 2008, Innlent Íbúakosningar krafist
- Þriðjudagur, 11. desember 2007, Innlent Vilja móta stefnu um raflínur í jörð
- Mánudagur, 5. nóvember 2007, Innlent Ekki vilji fyrir raflínum
- Fimmtudagur, 29. mars 2007, Innlent Kostnaður við raflínur í jörðu í Vallarhverfi nemur 800 milljónum
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































