Viðurkenning Alþjóðahúss afhent

Viðurkenningarhafarnir í dag ásamt forseta Íslands og fulltrúum Alþjóðahúss og …
Viðurkenningarhafarnir í dag ásamt forseta Íslands og fulltrúum Alþjóðahúss og Landsbankans.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Luca Lúkasi Kostić, knattspyrnuþjálfara, útvarpsmönnunum Hjálmari Sveinssyni og Ævari Kjartanssyni og Eflingu-stéttarfélagi viðurkenningu Alþjóðahúss í dag  fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi.

Viðurkenningin, sem nú er veitt í fimmta skipti, þjónar þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda.

Veittar voru viðurkenningar fyrir lofsverða frammistöðu í þremur flokkum: til einstaklings af íslensku bergi brotinn sem hefur lagt sitt af mörkum til innflytjenda á Íslandi sem voru tveir að þessu sinni, til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins og til fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda og fjölmenningarsamfélagsins.

Alþjóðahúsið segir, að Lúkas Kostić sé eini íslenski knattspyrnuþjálfarinn sem leitt hefur landslið í 8-liða úrslitakeppni Evrópu og það sé vel við hæfi að einn albesti sendiherra knattspyrnunnar hérlendis fái viðurkenningu Alþjóðahússins að þessu sinni. Þá hafi Knattspyrnusamband Íslands í mörg ár beitt sér fyrir þátttöku í starfi á sínum vegum með það að leiðarljósi að knattspyrna er leikur án fordóma.

Hjálmar Sveinsson fær viðurkenningu Alþjóðahúss en hann hefur hefur lagt sig fram við að lýsa og túlka þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem eiga sér stað núna vegna alþjóðavæðingar og loftslagsbreytinga í starfi sínu sem dagskrárgerðarmaður á RÚV undanfarinn áratug.

Ævar Kjartansson dagskrárgerðarmaður hefur sinnt málefnum innflytjenda hin síðari ár og reynt að vekja athygli á þeim möguleikum sem felast í margbreytileika fjölmenningarsamfélags. Alþjóðahús segir, að í þáttunum Víðsjá og Vítt og breitt hafi  Ævar látið raddir fólks af erlendu bergi brotið hljóma í útvarpi og vanið þannig hlustendur Rásar 1 við málfar þeirra sem lært hafa íslensku á fullorðinsárum. Það sé liður í að efla umburðarlyndi miðaldra Íslendinga í garð aðfluttra.

Þá segir Alþjóðahús að Efling-stéttarfélag hafi lagt mikla áherslu á að sinna málefnum útlendinga en ríflega þriðjungur félagsmanna sé af erlendum uppruna, eða yfir 8000 starfsmenn af yfir 120 þjóðernum.  Þegar félagsmönnum með erlent ríkisfang tók að fjölga fyrir alvöru á árunum  2003-4  hafi verið lagt mikið kapp  á að ná til þess stóra hóps erlendra launamanna sem kominn var inn í félagið á skömmum tíma, m.a. með útgáfu fréttablaðs á nokkrum tungumálum, kynningarfunda og námskeiðahalds, ásamt því að eiga gott samstarf við önnur félög og stofnanir.

Viðurkenning Alþjóðahúss, Vel að verki staðið, er tileinkuð Thor Jensen en hann flutti hingað til lands ungur að aldri, vann sig upp úr sárri fátækt og markaði rekstur fyrirtækja hans innreið tæknialdar í íslenskt atvinnulíf og hafði hann gríðarleg áhrif á íslenskt samfélag á fyrri hluta 20. aldar. Landsbankinn er bakhjarl viðurkenningarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert