Sjö ungmenni handtekin

mbl.is/Júlíus

Lögreglunni á Akranesi barst kæra frá Sparisjóðnum á Akranesi sl. fimmtudag vegna fjársvika. Reyndist um að ræða mál þar sem um 6,5 milljónir króna höfðu verið teknar út af reikning í heimildarleysi og millifærðar á nokkra aðila. Rannsókn gekk hratt fyrir sig og voru 7 ungmenni á aldrinum 17 ára til liðlega tvítugs handtekin og yfirheyrð vegna málsins.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ljóst að málið var talsvert að umfangi og var því leitað til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra eftir aðstoð og síðan óskað eftir því að Ríkislögreglustjóri tæki yfir rannsókn málsins.

Féð notað til fíkniefnaviðskipta

Strax á fimmtudagskvöld var eigandi reikningsins sem notaður var handtekinn og allan föstudag stóðu yfir handtökur og yfirheyrslur og fylltust fangageymslur lögreglunnar á Akranesi um tíma. Rannsókn gekk hratt fyrir sig og voru 7 ungmenni á aldrinum 17 ára til liðlega tvítugs handtekin og yfirheyrð vegna málsins. Játningar liggja fyrir og leiddi rannsóknin í ljós að verulegur hluti peninganna voru notuð til fíkniefnaviðskipta.

Málið er enn í rannsókn og er ekki frekari frétta að vænta af því fyrr en líður á næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert