Lögreglumenn stóðu ræningja að verki
Grímuklæddur maður réðst að rannsóknarmönnum um hádegisbil í gær, er þeir voru í verslun í austurborginni með það fyrir augum að handtaka starfsmann vegna gruns um að hann hefði verið viðriðinn nýleg rán í annarri verslun í borginni.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að lögreglumennirnir hafi ekki verið lengi inni í versluninni þegar grímuklæddur maður kom inn. Andlit hans var algjörlega hulið og er lögreglumenn höfðu afskipti af honum reyndist hann vera vopnaður eldhúshnífi.
Lögreglumennirnir handtóku manninn sem reyndist vera vinur starfsmanns verslunarinnar og var starfsmaðurinn því einnig handtekinn.
Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnir, sem báðir eru á tvítugsaldri, höfðu undirbúið og skipulagt sviðsetningu á ráni í versluninni í þeim tilgangi að ná peningum, símainneignum og tóbaki en starfsmaðurinn hafði einungis unnið í versluninni í fjóra daga.
Við yfirheyrslu játaði hinn maðurinn að hafa ætlað að ræna verslunina og að starfsmaðurinn hafi undirbúið verknaðinn og látið sig vita þegar láta átti til skarar skríða. Skömmu síðar komu hins vegar lögreglumennirnir á vettvang.
Við húsleit heima hjá starfsmanni verslunarinnar fannst þýfi, sem tengist innbrotum, m.a. í Borgarfirði. Um var að ræða fartölvur og skjávarpa.
Þá vakti það athygli lögreglu að ræninginn var klæddur í tvær peysur og tvennar buxur. Þótt kalt hafi verið úti var það ekki skýringin á klæðnaðinum heldur ætlaði hann að komast fljótt úr fötunum og henda af sér á leið af ránsvettvangi.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Sigþór Jensson Ráðagóðir lögreglumenn -
Helga Linnet Strákar mínir...passa sig betur næst ;) -
Óli Þór Gunnarsson Vel gert! -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Svakalegt gáfnafar! -
Guðlaug Birna Björnsdóttir Snilld!
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. janúar 2008, Innlent Í gæsluvarðhald vegna gruns um rán
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Hnuplað fyrir mörg hundruð þúsund í Smáralind
- Sunnudagur, 30. desember 2007, Innlent Ræningi ófundinn
- Miðvikudagur, 26. mars 2008, Innlent Ránstilraun á Akureyri
- Miðvikudagur, 28. maí 2008, Innlent Brjálaðist allt í einu
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































