Ólafur Ragnar í opinbera heimsókn til Katar
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Ómar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fer í opinbera heimsókn til Katar dagana 22.-25. janúar. Er það í fyrsta sinn sem forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til ríkis í Arabaheiminum, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands.
Á dagskrá heimsóknarinnar eru viðræðufundir með þjóðarleiðtoga Katar Hamad Bin Khalifa Al Thani og öðrum forystumönnum landsins og þátttaka í samræðum um tækifæri smárra ríkja í hagkerfi 21. aldar.
Þá munu Ólafur Ragnar og íslensk viðskiptasendinefnd hitta fulltrúa fyrirtækja í Katar en Útflutningsráð hefur annast undirbúning þeirra funda. Ólafur Ragnar mun auk þess taka þátt í hádegisverði í boði Kaupþings og heimsækja skrifstofur bankans. Þá mun hann kynna sér starfsemi sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera.
Í för með Ólafi Ragnari eru Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, embættismenn frá iðnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti og forsetaembættinu og fjölmargir fulltrúar íslenskra fyrirtækja.
Ólafur Ragnar mun áður taka þátt í heimsráðstefnu um framtíð orkumála, World Future Energy Summit, sem haldin er í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 20.-22. janúar.
Hann mun flytja ræðu á opnunarfundi ráðstefnunnar og tekur þátt í umræðum. Össur flytur einnig ræðu á ráðstefnunni.
Þá situr Ólafur Ragnar, ásamt Ismail Omar Guelleh, forseta Djíbútís, sérstakan kynningarfund sem haldinn verður í Abu Dhabi um jarðhitasamvinnu Íslands og Djíbútís. Lagður var grundvöllur að þeirri samvinnu í heimsókn forseta Djíbútís til Íslands í febrúar í fyrra. Við það tækifæri var undirritaður samningur Orkuveitu Reykjavíkur við stjórnvöld í Djíbútí um rannsóknir og nýtingu jarðhita.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Austurlöndin seiða ? -
Þorkell Sigurjónsson ER EKKERT AÐ MARKA ORÐ FOESETA ÍSLADS ?
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. maí 2008, Innlent Ólafur Ragnar Grímsson í Katar
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Ólafur Ragnar heimsótti Abdullah konung
- Miðvikudagur, 18. júní 2008, Innlent Sendinefnd frá Katar heimsækir forseta Íslands
- Fimmtudagur, 6. mars 2008, Innlent Forseti Íslands í opinbera heimsókn til Mexíkó
- Þriðjudagur, 19. ágúst 2008, Innlent Ólafur Ragnar á leið til Bangladess
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































