Ákærður fyrir kynferðisbrot

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins.
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins.

Guðmundur Jónsson fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins verður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum en ein þeirra er undir lögaldri.

Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 að Guðmundi sé gefið að sök að hafa notfært sér andlega annmarka kvennanna til þess að hafa við þær samræði á meðan á meðferð þeirra stóð. 

Guðmundur gegndi stöðu forstöðumanns í meðferðarheimilinu Byrginu þegar atvikin áttu sér stað.

Guðmundur hefur neitað staðfastlega sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert