HB Grandi og Vinnumálastofnun í samstarf

HB Grandi á Akranesi.
HB Grandi á Akranesi.

HB Grandi og Vinnumálastofnun ætla að gera sameiginlega áætlun um endurmenntun og ráðgjöf gagnvart þeim sem missa vinnuna þegar uppsagnir starfsfólks í fiskvinnslu HB Granda á Akranesi koma til framkvæmda.

Viðkomandi starfsmönnum verður veitt aðstoð við atvinnuleit, aðgengi að viðeigandi námskeiðum, gerð ferilsskrár og greiningu áhugasviðs síns. HB Grandi greiðir kostnað við verkefnið og leitað verður eftir samstarfi við þá sem annast fræðslu og námskeiðahald, við verkalýðsfélög og við aðra eftir atvikum.

Fram kemur á heimasíðu HB Granda, að stjórnendur fyrirtækisins séu þegar byrjaðir að kanna möguleika starfsfólks fyrirtækisins á Akranesi til vinnu í öðrum starfsstöðvum fyrirtækisins og kynna niðurstöður þeirrar könnunar fljótlega. Fyrirtækið stefni að því að kynna um miðjan febrúar hverjir verði endurráðnir úr núverandi hópi starfsmanna þess á Akranesi og hvaða verkum þeir komi til með að sinna.

HB Grandi segir, að uppsagnir fiskvinnslufólks á Akranesi hafi verið ræddar ítarlega í gær á fundi sem Vinnumálastofnun boðaði til að kröfu Alþýðusambands Íslands. Á fundinn hafi mætt fulltrúar HB Granda og Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúar Alþýðusambandsins hafi hins vegar  hins vegar ekki fært að mæta.

Þá segir, að fundurinn í gær hafi verið boðaður að frumkvæði ASÍ til að ræða ávirðingar á hendur HB Granda um að fyrirtækið hefði brotið lög og rétt á starfsmönnum sínum á Akranesi. Ekkert hafi hins vegar komið þar fram, sem bendi til að HB Grandi hafi staðið ranglega að málum, hvað þá að lög hafi verið brotin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert