Olíufélög greiði bætur
Hæstiréttur hefur dæmt olíufélögin þrjú, Ker, Skeljung og Olís, til að greiða Reykjavíkurborg tæpar 73 milljónir króna í bætur vegna tjóns, sem borgin varð fyrir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna. Þá dæmdi Hæstiréttur olíufélögin til að greiða Strætó bs. tæpar 6 milljónir í bætur.
Staðfesti Hæstiréttur með þessum dómum dóma Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðnir voru upp á síðasta ári.
Málið sem Reykjavíkurborg höfðaði var vegna útboða á olíuvörum fyrir Strætisvagna Reykjavíkur og Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar á árunum 1993, 1996 og 2001. Var tilboði Skeljungs tekið í útboðum 1993 og 1996 en tilboði Olís í útboði 2001.
Samkeppnisstofnun komst m.a. að þeirri niðurstöðu á sínum tíma, að olíufélögin þrjú hefðu aðgerðum sínum haft samráð meðal annars um útboðsverð til Reykjavíkurborgar og auk þess stýrt sameiginlega viðskiptunum til Skeljungs og síðan skipt á milli sín framlegð af þeim. Hafi þessi hegðun þeirra falið í sér ólögmætt samráð og brotið gegn samkeppnislögum.
Olíufélögin viðurkenndu í málatilbúnaði sínum að þau hefðu með samráði við þetta útboð brotið gegn 10. gr. þágildandi samkeppnislaga en töldu ósannað að Reykjavíkurborg hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa.
Hæstiréttur segir sýnt, að olíufélögin hafi samið af nákvæmni um hvað Reykjavíkurborg yrði boðið af hendi hvers þeirra og að sá, sem lægst bauð myndi greiða hinum tiltekna fjárhæð fyrir hvern lítra af eldsneyti, sem borgin keypti. Olíufélögin hafi ekkert fært fram í málinu, sem staðið gæti í vegi þeirri ályktun, að tilgangur þessa alls hafi verið að halda viðskiptum Reykjavíkurborg hjá Skeljungi gegn verði sem ekki hefði staðist boð Kers og Olís, ef reglur samkeppnislaga hefðu verið virtar.
Þá hefðu olíufélögin heldur ekkert fært fram til stuðnings því að slíkur ágóði hefði ekki hlotist af þessu í reynd. Sá ágóði hefði ekki verið ekki sóttur úr hendi annarra en Reykjavíkurborgar. Yrði því að leggja til grundvallar að leiddar hefðu verið nægar líkur að því að Reykjavíkurborg hafi orðið fyrir tjóni, sem olíufélögin þrjú hafi bakað henni og að þau séu skaðabótaskyld.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Hæfur embættismaður Hörður. -
Haraldur Haraldsson Hver í ábyrgð...önnur en kennitala olíufélags -
Jón Magnússon Almenningur á líka rétta á bótum. -
Vilhjálmur C Bjarnason Hvernig með DALARAFN..........
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 14. október 2008, Innlent Deilt um Alaska-samanburð
- Þriðjudagur, 6. febrúar 2007, Innlent Máli olíufélaga gegn ríkinu frestað fram í mars
- Föstudagur, 16. febrúar 2007, Innlent Ker dæmt til að greiða 15 þúsund krónur í bætur
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Ekki samstaða um matsmenn
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Fyrirtaka í olíusamráðsmáli
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































