Vatnstjón á Keflavíkurflugvelli ekki rakið til beinnar vanrækslu

Íbúðir á Keflavíkurflugvelli.
Íbúðir á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eyþór

Ríkisendurskoðun telur, að þótt finna megi að einu og öðru við yfirfærslu á mannvirkjum og rekstri á Keflavíkurflugvelli eftir brottför varnarliðsins, svo sem óljósri og óformgerðri hlutverkaskipan, fjárskorti eða síðbúnum fjárheimildum, sé mjög hæpið að álykta sem svo að vatnstjón sem varð þar haustið 2006 megi rekja til beinnar vanrækslu þeirra sem ábyrgð báru á svæðinu: utanríkisráðuneytisins og vinnuhóps sem átti að tryggja snurðulausa yfirfærslu á rekstri flugvallarins og öruggan rekstur hans eftir 1. október 2006.

Utanríkisráðuneytið óskaði eftir því að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á eftirliti og umsýslu ráðuneytisins, stofnana þess og annarra aðila með byggingum á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þegar vatnsskemmdir urðu á nokkrum bygginganna. 

Stofnunin telur að rekja megi tjónið að mestu leyti rekja til atvika, sem erfitt var að sjá fyrir, einkum óvenjulegs veðurlags og óvenjulegs frágangs vatnslagna. Af þessum sökum væri ósanngjarnt að ásaka þá aðila sem ábyrgð báru á svæðinu á þeim tíma sem tjónið varð um vanrækslu á eftirlits- og viðhaldsskyldum.

Samkvæmt mati Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. og Verkfræðistofu Suðurnesja ehf. var  tjónið af völdum vatnsskaðans talið hafa numið á bilinu 79–109 milljónum króna.

Ríkisendurskoðun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert