Aðstoðarmenn í fullu starfi
Aðstoðarmenn formanna flokka verða í fullu starfi og verða með starfsaðstöðu á skrifstofum Alþingis, en aðstoðarmenn alþingismanna verða í hlutastarfi, þriðjungs-starfi, og eru með starfsaðstöðu í kjördæmunum. Þingmönnunum verður heimilt að slá sér saman um ráðningu aðstoðarmanns og hækkar þá starfshlutfallið í samræmi við það. Laun aðstoðarmanna verða hlutfall af þingfararkaupi, samkvæmt tillögu sem afgreidd var á fundi forsætisnefndar á Alþingi í dag.
Í tengslum við breytingar á þingsköpum Alþingis í desember sl. voru samþykktar breytingartillögur við fjárlög ársins 2008 um aukin framlög til Alþingis til að koma á og kosta störf aðstoðarmanna alþingismanna. Var annars vegar gert ráð fyrir starfi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokka og hins vegar starfi aðstoðarmanna þingmanna úr hinum víðfeðmu kjördæmum, Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum.
Aðstoðarmennirnir verða ráðnir eftir tillögu viðkomandi alþingismanna en skrifstofa Alþingis mun sjá um alla launaumsýslu og gerð ráðningarsamninga. Ráðningartímabil verður að hámarki til loka kjörtímabils hverju sinni. Aðstoðarmennirnir munu vinna eftir fyrirmælum alþingismannanna. Þeir fá jafnframt greiðslu fyrir útlögðum kostnaði eftir nánari reglum.
Ekki opinberir starfsmenn
Aðstoðarmennirnir verða ekki opinberir starfsmenn en áskilið er að farið verði eftir sömu almennu hæfisskilyrðum og gilda um opinbera starfsmenn. Enn fremur eru settar skorður við skyldmennaráðningum. Ríkisendurskoðun verður falið að hafa á hendi endurskoðun og eftirlit með greiðslum til aðstoðarmanna.
Reglur um aðstoðarmenn alþingismanna munu öðlast gildi frá og með 1. mars 2008 og verða þá birtar á heimasíðu Alþingis.
Bloggað um fréttina
-
Björgvin Guðmundsson Þingmenn fá aðstoðarmenn -
Kjartan Pétur Sigurðsson HEFÐI EKKI VERIÐ NÆR AÐ STYTTA 109 DAGA SUMARFRÍ ÞINGMANNA? -
Elías Theódórsson Báknið burt var eitt sinn slagorð ákveðins stjórnmálaflokks. -
Björn Finnbogason Ef minnið er ekki að svíkja mig! -
Ari Guðmar Hallgrímsson Er þetta kannski ein af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar. -
Magnús Helgi Björgvinsson Nú þegar verið er að fjölga aðstoðarmönnum - Þá eigum ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. febrúar 2008, Innlent Aðstoðarmenn ekki opinberir starfsmenn
- Miðvikudagur, 12. mars 2008, Innlent Frumvarp um aðstoðarmenn þingmanna samþykkt
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent Þingmenn fái að ráða aðstoðarmenn
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Flutningum þingmanna frestað
- Fimmtudagur, 27. mars 2008, Innlent Svar Árna M. Mathiesen til umboðsmanns Alþingis
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































