„Þetta var ekki auðvelt“

„Þetta var ekki auðvelt,“ sagði Ólöf Ólafsdóttir, vagnstjóri hjá Strætó bs., sem vann hetjudáð nýverið þegar hún, með hjálp tveggja stúlkna, blés lífi í farþega sem hafði fengið hjartastopp í vagninum, líkt og fram kom í 24 stundum í dag.

Hún hafði aðeins verið um einn mánuð í starfi þegar atburðurinn gerðist. Hún lætur hins vegar engan bilbug á sér finna og nýtur þess að aka strætisvagni, og segir starfið bæði skemmtilegt og krefjandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert