Rót virðist komið á fasteignamarkaðinn
mbl.is
„Síminn hefur ekki stoppað hjá okkur síðan á mánudagsmorguninn. Fjöldinn allur af ungu fólki hefur haft samband við okkur og spurt hvernig það eigi að snúa sér varðandi íbúðarkaup. Við höfum því miður litlu getað svarað því,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, en yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um niðurfellingu stimpilgjalda vegna lána til kaupa á fyrstu fasteign virðist vera að koma talsverðu róti á fasteignamarkaðinn.
Þrátt fyrir að almenn ánægja ríki með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar gagnrýna fasteignasalar þá óvissu sem ríki um framkvæmdina. „Það er mjög slæmt að þetta sé ekki fullmótað og komi ekki til framkvæmda strax. Þetta getur orðið til þess að fólk haldi að sér höndum varðandi fasteignakaup í þeirri von að þessi niðurfelling stimpilgjaldanna verði að veruleika fljótlega. Það er auðvitað ákaflega slæmt fyrir markaðinn allan, seljendur og þá kaupendur sem hugsanlega falla undir þessi ákvæði. Öll svona óvissa er mjög vond fyrir fólk,“ segir Grétar.
Erla Guðrún Gísladóttir er um þessar mundir að skoða íbúðir með kaup í huga. Það yrði hennar fyrsta íbúð. Hún segir að það sé vissulega óþægilegt að vita ekki hvenær stimpilgjöld verða felld niður. „Ef það væri ljóst að það ætti að afnema stimpilgjöld alveg á næstunni þá myndi maður líklega bíða. Hins vegar virðist allt óljóst um þessa niðurfellingu, þannig að maður er eiginlega í lausu lofti.“
Undir þetta tekur Grétar. „Ég er búinn að heyra í mjög mörgu ungu fóki sem segist ætla að bíða með íbúðarkaup þar til málin skýrast.“
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir að vissulega eigi eftir að útfæra margt varðandi aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Það er í sjálfu sér ekkert nýtt. Stóru atriðin eins og hækkun persónuafsláttar og skerðingarmörk barnabóta eru skýrt sett fram og tímasett. Nánari útfærsla á öðrum atriðum finnst mér algjört aukaatriði. Það er hins vegar alveg rétt að það er óheppilegt að það sé ekki tímasetning á því hvenær stimpilgjöld verða felld niður. Þetta getur verið mikið hagsmunamál fyrir fólk og maður getur ekki annað en hvatt fólk til þess að bíða aðeins með kaup þar til þetta tekur gildi.“
Bloggað um fréttina
-
Jón Aðalsteinn Jónsson Breytir ekki öllu -
Ásgrímur Hartmannsson Fyrir fyrstu kaupendur? -
Ingi Björn Sigurðsson Tilboð til Íslensku Þjóðarinnar -
Eyþór Eðvarðsson í Vilnius Stimpilgjöld og verðtrygging -
Magnús Helgi Björgvinsson Bölvuð vitleysa
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent „Stimpilgjöld á að afnema“
- Fimmtudagur, 3. apríl 2008, Innlent Óttast stíflu á fasteignamarkaði fram til 1. júlí
- Miðvikudagur, 20. febrúar 2008, Innlent Hættulegt að hætta að stimpla?
- Laugardagur, 30. ágúst 2008, Innlent Dýr 1% eignarhlutur
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Óvissa fælir fólk frá markaðnum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































