Kennarar í Reykjavík fá álagsgreiðslur

Melaskóli í Reykjavík
Melaskóli í Reykjavík mbl.is/Júlíus

Reykjavíkurborg mun í næstu viku hefja ráðstöfun fjármagns til grunnskóla borgarinnar í samræmi við tillögur borgarstjóra um aukafjárveitingu til aðgerða í starfsmannamálum. Til menntasviðs renna um 160 milljónir króna og er markmiðið með greiðslunum að umbuna þeim starfsmönnum fjölmargra vinnustaða sem unnið hafa undir sérstaklega miklu álagi vegna manneklu á undanförnum mánuðum.

Kennarar og annað háskólamenntað starfsfólk fær 23 þúsund króna eingreiðslu í þrjú skipti og aðrir starfsmenn skóla fá 16 þúsund króna eingreiðslu í þrjú skipti. Mismunandi fjárhæðir til starfsmanna taka mið af launamun þessara hópa, auk þess sem ábyrgð fyrri hópsins hefur verið meiri við að halda uppi kennslu. Skólastjórar og aðstoðarskólastjórar fá 40 þúsund króna eingreiðslu í eitt skipti, enda hafa þeir föst laun sem eiga að rúma hluta af þessu aukna álagi, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Á öðrum sviðum og skrifstofum verður fjármagnið nýtt til margvíslegra aðgerða í starfsmannamálum, einkum til að styrkja starfsanda, efla liðsheild og bæta starfsaðstæður.

„Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, vill með þessu móti viðurkenna framlag og staðfestu starfsmanna við að veita borgarbúum ávallt sem besta þjónustu," samkvæmt fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert