Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Árvakur/Brynjar Gauti

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur ákveðið að sitja áfram sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og taka sæti borgarstjóra eftir rúmt ár, skv. heimildum 24 stunda. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagði að Vilhjálmur hefði sagt nánum samstarfsmönnum sínum þetta og formlegrar tilkynningar væri að vænta.

 „Ég hef ekkert fengið staðfest um þetta, hvorki formlega né óformlega,“ segir Ólafur F. Magnússon borgarstjóri. Hann segist hafa hitt Vilhjálm seinast á fimmtudag og þá hafi málið ekki verið rætt „enda var í nógu að snúast í borgarráði. Hins vegar var ekkert fararsnið á Vilhjálmi.“

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi kannaðist ekki við málið né aðrir borgarfulltrúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert