Grunaðir um að hafa sett lyf í drykki

Tveir karlmenn voru handteknir á skemmtistaðnum Vegamót aðfararnótt sunnudags grunaðir um að hafa sett lyf í drykki stúlkna á staðnum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var mönnunum sleppt að lokinni skýrslutöku.

Við leit á mönnunum, sem eru brasilískir, fundust engin efni en töfluleifar fundust hins vegar í glösum á veitingastaðnum. Ekki liggur fyrir um hvaða efni er að ræða, en lögreglan hefur sent þau í efnagreiningu.

Ekki er vitað til þess að nokkur hafi drukkið umrædda lyfjakokteila.

Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert