Grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna

Tveir ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri um helgina, annar á laugardag og hinn á sunnudag, grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Í báðum tilfellunum var um sömu bifreiðina að ræða en sitthvorn ökumanninn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

 Á föstudagskvöld var einn maður handtekinn með nokkur grömm af kannabisefnum í fórum sínum. Hann var látinn laus af yfirheyrslu lokinni og telst málið upplýst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert